Vika 8

Vika 8
Ráðgjafarsamskipti - viðtalstækni grunnfærni
Viðtalstækni og samband við ráþega
Samband ráðþega og ráðgjafa er mjög mikilvægt.
Ráðgjafarsambandið þarf að vera byggt upp á trúnaði og trausti.
Við erum verkfærin, þurfum að skoða okkur sjálf vel, fara í sjálfsskoðun. Hver er ég og hvaða gildi skipta mig máli.
Sjálfsþekking gerir okkur kleift að stýra sjálf hversu mikil áhrif persónueinkenni okkar hafa á ráðgjöfina.
Setjum þarfir skjólstæðings í forgang, vörumst að uppfylla eigin þarfir.
Í bókinni Becoming a Helper (Corey og Corey, 2007) er talað um að sum  gildi eða lífsýn geta haft áhrif á ráðgjöfina en önnur ekki. Fordómar og gildi? Lítið sem greinir á milli.

Fordómar geta einnig valdið ráðgjafa erfiðleikum í ráðgjöf t.d. þú telur að fólk með tattú sé hættulegt. Að gera sér grein fyrir sínum eigin fordómum og vera tilbúin að fara inn í ráðgjöf með opnum hug getur verið lærdómsferli fyrir ráðgjafa. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Vika 2

Vika 6