Vika 3

Vika 3
Samhengi ráðgjafar, lög og stefnur
Hvað segja lögin um náms-og starfsráðgjöf í grunnskólum, framhaldsskólum, Háskólum, endurmenntun, vinnumarkaði, starfsendurhæfingu.
Í grunnskólanum sem ég hef verið að vinna í undan farin ár er starfandi náms-og starfsráðgjafi.  Hún er ein af þeim sem fékk metið hin ýmsu námskeið og starfsreynslu og starfar því sem náms-og starfsráðgjafi. Ég hef margt út á hennar vinnu að setja sem á ekki heima hér en alla vega geri ég mér grein fyrir því að góðir náms-og starfsráðgjafar geta unnnið kraftaverk í grunnskólum. Það er ákveðið starfsöruggi að vita að þeir sem útskrifast sem náms-og starfsráðgjafar hafa rétt á að bera þennan titil.
Auðvita var talað um þagnarskyldu. Þagnarskylda er eins og í grunnskólanum mjög mikilvæg. Ráðþegar verða að vita að þeir geti komið til ráðgjafa og treyst því að þeirra vandi eða hvað það er sem ráðgjöfin snýst um fari ekki út fyrir veggi herbergisins.
Í ráðgjafarkenningum fórum við yfir lög og skildur náms-og starfsráðgjafa. Sögu náms-og starfsráðgjafa. Margt fróðlegt kom fram þó sérstaklega hversu ung þessi starfsgrein er.

Í ráðgjafakenningum var viðfangsefnið: Fjölmenning og ráðgjöf

Samfélagið okkar í dag samanstendur af ólíkum menningarhópum. Ísland er lítið land en fólk ef erlendum uppruna fjölgar hratt. Ráðgjafar þurfa að vinna með opnum hug og passa sig á fordómum. Það er örugglega skelfilegt að vinna sem ráðgjafi og fá ráðþega sem þér líkar ekki við eða jafnvel þolir ekki. Hvernig ætli ráðgjafar vinni sig út úr svoleiðis aðstæðum? 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Vika 2

Vika 8

Vika 6