Ferilmappan
Þessi ferilmappa er samantekt frá fyrstu önn minni í Náms-og starfsráðgjöf í Háskóla Íslands. Ég byrjaði á því að búa mér til google site síðu en ég gat svo lítið gert með það svæði. Þannig að ég tók allt efnið þar af og sett inn á word skjal. Síðan bjó ég mér til þetta blogg svæði í gegnum google. En ég er ekki mjög klár í svona og kann því ekki að færa til færslur og setja myndir. En ég ætla mér að halda áfram með þetta blogg meðan ég er í náminu þannig að vonandi verð ég orðin tölvutæknitröll við útskrift.