Færslur

Ferilmappan

Þessi ferilmappa er samantekt frá fyrstu önn minni í Náms-og starfsráðgjöf í Háskóla Íslands. Ég byrjaði á því að búa mér til google site síðu en ég gat svo lítið gert með það svæði. Þannig að ég tók allt efnið þar af og sett inn á word skjal. Síðan bjó ég mér til þetta blogg svæði í gegnum google. En ég er ekki mjög klár í svona og kann því ekki að færa til færslur og setja myndir. En ég ætla mér að halda áfram með þetta blogg meðan ég er í náminu þannig að vonandi verð ég orðin tölvutæknitröll við útskrift.

cv-ið mitt

Nafn: Guðlaug Ragnarsdóttir Kt: 160976-4549 Heimilisfang: Lyngbakki 3 Sími/GSM: 553-4543/896-5494 Netfang:gudlaug76@gmail.com Menntun 1997   Stúdentspróf-Félagsfræðibraut frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla 2003   Tanntæknibraut frá Heilbrigðisskóla Ármúla 2011 Grunnskólakennarafræði. Kennsla yngri barna í grunnskólum. Háskóla Íslands-menntavísindasvið. Starfsreynsla 2003-2005/2011-2017 Nesskóli Neskaupstað. Grunnskólakennari. Umsjónakennari. 2016- (klára 2018)           Leiðtoganám í Byrjandalæsi frá Háskóla Akureyrar. 2002-2003/ 2005-2006 Tannlæknastofa Pálma Stefánssonar NN 2003-2017   Sundþjálfari hjá sunddeild Þróttar 1999   Leikskólinn Múlaborg 1995-1996  Au-pair í Bandaríkjunum 1993-1995/1996-1999  Sundlaug Neskaupstaðar Þekking og færni Vel talandi og skrifandi á ensku. Bjarga mér í dönsku. Góð tölvukunnátta.  Annað Hef mikinn áhuga á að vinna með börnum. Er um...

Vika 14

Vika 14 Mat á vanda ráðþega Ína Björg Hvað er mat : aðferðir og verkfæri sem við söfnum saman um ráðþega. Notuðum ráðþegana Önnu og Einar til að fara yfir hvernig hægt er að meta vanda ráðþega. Nýttum okkur lesefni úr bók eftir Cormier og Nurius ( Cormier og Nurius, 2003). Þessi tími einhvern vegin setti saman allt það sem við höfum farið yfir í vetur. Mjög gott og gagnlegt og góðar umræður og æfingar sem við tókum í tímanum. Matsviðtal: til að safna upplýsingum Skoðum oft próf og áhugasiðskönnun Þegar við erum komin með allar upplýsingar þá getum við fundið hvað hægt er að gera: aðferðaplan Í grunnskólum:notum við oft upplýsingar frá kennunum, foreldrum og fleira til að fá heildarupplýsingar. Fáum merkingarbæra heild: conseptualization Matið er svo alltaf í gangi áfram því oft koma auka upplýsingar á ferlinu, erum alltaf að endurmeta. AHA: skoðar afdraganda hegðunarinnar, hegðunia og hver afleiðingin var. Sálfræðilegt. Hugræn athyglismeðferð. Eintaklingur og um...

Vika 13

Vika 13 Heimsókn í Iðuna Heimsókn í Iðuna opnaði augun mín varðandi svo margt sem hægt er að gera sem náms-og starfsráðgjafi. Raunfærnimatið finnst mér eitthvað sem við þurfum að auglýsa betur. Ég átti einmitt spjall við Ernu sem vinnur hjá Iðunni varðandi hvernig best væri að koma upplýsingum til sem flestra varðandi möguleikann á að fara í raunfærnimat. Ég tel að t.d. fólk út á landi viti almennt séð ekki af þessum möguleika og menntunarstig fólks úti á landi er almennt lægra en fólks á höfuðborgasvæðinu og því tel ég mikilvægt að náms-og starfsráðgjafar komi þessum upplýsingum fram á sem flesta vinnustaði í þeim fögum sem hægt er að fara í raunfærnimat.

Vika 12

Vika 12 Hvað er rafræn ráðgjöf? Tölvustudd náms- og starfsráðgjöf, upplýsingar um nám og störf Lísa var með alveg ótrúlega spennandi sýn á rafræna náms-og starfsráðgjöf. Hún sýndi okkur hvernig vinir okkar Danir nýta sér tæknina í náms-og starfsráðgjöf. Hvað er rafræn ráðgjöf? Er það hægt á Íslandi? e-vejledning

Vika 11

Vika 11 Upplýsingasamfélag – upplýsingalæsi. Markviss upplýsingaöflun og mat á gæðum upplýsinga og upplýsingaveita Hlustuðum á fyrirlestur inn á Moodle sem var mjög gagnlegt og spjölluðu nemendur saman á netinu um ákveðin viðfangsefni. Það er hægt að nýta sér tæknina á margan hátt. Ég er mjög spennt að skoða hvernig náms-og starfsráðgjafar nýta sér tæknina í dag. Hvernig notum við upplýsingatækni í dag? Ég nota t.d. tæknina í námi. Ég hlusta á fyrirlestra bæði í Megindlegri aðferðafræði og í Ráðgjafarkenningum. Ég mæti reglulega í tíma en inn á moodle svæðinu get ég fundið alla þá tíma sem hafa verið. Þetta finnst mér alveg dásamlegt. Ekki bara það að ég búi hinu megin á landinu heldur t.d. bara ef nemendur eru veikir eða eitthvað kemur upp á. Mastersnám er val og við erum fullorðnir einstaklingar sem stjórnum okkur sjálf. Þetta finnst mér einnig mikilvægt baráttumál fyrir landsbyggðina. Það er alveg ömurlegt að Háskóli Íslands setja kröfur á hvar fólk býr. Þetta er H...

Vika 10

Vika 10 Vettvangsheimsókn Fórum í vettvangsheimsókn til Hildar Ýrar Gísladóttur í Verkmenntaskóla Austurlands. Fórum tvær saman í VA. Var mjög áhugavert og skemmtilegt. Fylgdumst með margskonar stuttum viðtölum sem náms-og starfsráðgjafinn tók. Hún var mjög flott í að leið nemendum á lausnarmiðun; Eigum við að hjálpast að við að finna lausn á þessu? Fengum að fylgjast með viðtali við unglinga sem t.d. voru með frestunaráráttu, hugbrigðaröskun, einelti, ásætti við kennara, skrá í og úr áföngum. Einnig aðstoðuðum við krakka á 1 ári í að velja fyrir næstu önn. Fylgdumst með þegar náms-og starfsráðgjafi lagði fyrir Brotthvarfskönnun og fórum á fyrirlestur; Að glíma við erfiða hegðun, algeng vandamál og ólíkar nálganir. Það var mjög gaman að geta tengt námið í Megindlegri aðferðafræði við Brotthvarfskönnunina. Stella Blöndal hefur sýnt okkur margt í þeirri könnun og var gaman að sjá hvernig sú könnun virkar í raun og veru.