Vika 11
Vika 11
Upplýsingasamfélag –
upplýsingalæsi. Markviss upplýsingaöflun og mat á gæðum upplýsinga og
upplýsingaveita
Hlustuðum á fyrirlestur inn á Moodle sem var mjög gagnlegt og spjölluðu
nemendur saman á netinu um ákveðin viðfangsefni.
Það er hægt að nýta sér tæknina á margan hátt. Ég er mjög spennt að
skoða hvernig náms-og starfsráðgjafar nýta sér tæknina í dag.
Hvernig notum við upplýsingatækni í dag? Ég nota t.d. tæknina í námi. Ég
hlusta á fyrirlestra bæði í Megindlegri aðferðafræði og í Ráðgjafarkenningum.
Ég mæti reglulega í tíma en inn á moodle svæðinu get ég fundið alla þá tíma sem
hafa verið. Þetta finnst mér alveg dásamlegt. Ekki bara það að ég búi hinu
megin á landinu heldur t.d. bara ef nemendur eru veikir eða eitthvað kemur upp
á. Mastersnám er val og við erum fullorðnir einstaklingar sem stjórnum okkur
sjálf. Þetta finnst mér einnig mikilvægt baráttumál fyrir landsbyggðina. Það er
alveg ömurlegt að Háskóli Íslands setja kröfur á hvar fólk býr. Þetta er
Háskóli allra í landinu og því á að vera hægt að nýta sér tæknina á margar og
mismunandi hátt.
Náms-og starfsráðgjafar geta nýtt sér tæknina á margan hátt. T.d. þegar
lögð er fyrir Brotthvarsfkönnunin í VA. Nemendur voru með síma eða tölvu. Fengu
lykilorð og leyniorð sem náms-og starfsráðgjafinn var búin að útbúa fyrir
tímann. Síðan svöruðu nemendur könnuninni. Í lok tímans gat náms-og
starfsráðgjafinn sýnt okkur niðurstöðurnar strax. Þetta er frábær leið til að
nýta tæknina.
Ummæli
Skrifa ummæli