Færslur

Sýnir færslur frá 2017

Ferilmappan

Þessi ferilmappa er samantekt frá fyrstu önn minni í Náms-og starfsráðgjöf í Háskóla Íslands. Ég byrjaði á því að búa mér til google site síðu en ég gat svo lítið gert með það svæði. Þannig að ég tók allt efnið þar af og sett inn á word skjal. Síðan bjó ég mér til þetta blogg svæði í gegnum google. En ég er ekki mjög klár í svona og kann því ekki að færa til færslur og setja myndir. En ég ætla mér að halda áfram með þetta blogg meðan ég er í náminu þannig að vonandi verð ég orðin tölvutæknitröll við útskrift.

cv-ið mitt

Nafn: Guðlaug Ragnarsdóttir Kt: 160976-4549 Heimilisfang: Lyngbakki 3 Sími/GSM: 553-4543/896-5494 Netfang:gudlaug76@gmail.com Menntun 1997   Stúdentspróf-Félagsfræðibraut frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla 2003   Tanntæknibraut frá Heilbrigðisskóla Ármúla 2011 Grunnskólakennarafræði. Kennsla yngri barna í grunnskólum. Háskóla Íslands-menntavísindasvið. Starfsreynsla 2003-2005/2011-2017 Nesskóli Neskaupstað. Grunnskólakennari. Umsjónakennari. 2016- (klára 2018)           Leiðtoganám í Byrjandalæsi frá Háskóla Akureyrar. 2002-2003/ 2005-2006 Tannlæknastofa Pálma Stefánssonar NN 2003-2017   Sundþjálfari hjá sunddeild Þróttar 1999   Leikskólinn Múlaborg 1995-1996  Au-pair í Bandaríkjunum 1993-1995/1996-1999  Sundlaug Neskaupstaðar Þekking og færni Vel talandi og skrifandi á ensku. Bjarga mér í dönsku. Góð tölvukunnátta.  Annað Hef mikinn áhuga á að vinna með börnum. Er um...

Vika 14

Vika 14 Mat á vanda ráðþega Ína Björg Hvað er mat : aðferðir og verkfæri sem við söfnum saman um ráðþega. Notuðum ráðþegana Önnu og Einar til að fara yfir hvernig hægt er að meta vanda ráðþega. Nýttum okkur lesefni úr bók eftir Cormier og Nurius ( Cormier og Nurius, 2003). Þessi tími einhvern vegin setti saman allt það sem við höfum farið yfir í vetur. Mjög gott og gagnlegt og góðar umræður og æfingar sem við tókum í tímanum. Matsviðtal: til að safna upplýsingum Skoðum oft próf og áhugasiðskönnun Þegar við erum komin með allar upplýsingar þá getum við fundið hvað hægt er að gera: aðferðaplan Í grunnskólum:notum við oft upplýsingar frá kennunum, foreldrum og fleira til að fá heildarupplýsingar. Fáum merkingarbæra heild: conseptualization Matið er svo alltaf í gangi áfram því oft koma auka upplýsingar á ferlinu, erum alltaf að endurmeta. AHA: skoðar afdraganda hegðunarinnar, hegðunia og hver afleiðingin var. Sálfræðilegt. Hugræn athyglismeðferð. Eintaklingur og um...

Vika 13

Vika 13 Heimsókn í Iðuna Heimsókn í Iðuna opnaði augun mín varðandi svo margt sem hægt er að gera sem náms-og starfsráðgjafi. Raunfærnimatið finnst mér eitthvað sem við þurfum að auglýsa betur. Ég átti einmitt spjall við Ernu sem vinnur hjá Iðunni varðandi hvernig best væri að koma upplýsingum til sem flestra varðandi möguleikann á að fara í raunfærnimat. Ég tel að t.d. fólk út á landi viti almennt séð ekki af þessum möguleika og menntunarstig fólks úti á landi er almennt lægra en fólks á höfuðborgasvæðinu og því tel ég mikilvægt að náms-og starfsráðgjafar komi þessum upplýsingum fram á sem flesta vinnustaði í þeim fögum sem hægt er að fara í raunfærnimat.

Vika 12

Vika 12 Hvað er rafræn ráðgjöf? Tölvustudd náms- og starfsráðgjöf, upplýsingar um nám og störf Lísa var með alveg ótrúlega spennandi sýn á rafræna náms-og starfsráðgjöf. Hún sýndi okkur hvernig vinir okkar Danir nýta sér tæknina í náms-og starfsráðgjöf. Hvað er rafræn ráðgjöf? Er það hægt á Íslandi? e-vejledning

Vika 11

Vika 11 Upplýsingasamfélag – upplýsingalæsi. Markviss upplýsingaöflun og mat á gæðum upplýsinga og upplýsingaveita Hlustuðum á fyrirlestur inn á Moodle sem var mjög gagnlegt og spjölluðu nemendur saman á netinu um ákveðin viðfangsefni. Það er hægt að nýta sér tæknina á margan hátt. Ég er mjög spennt að skoða hvernig náms-og starfsráðgjafar nýta sér tæknina í dag. Hvernig notum við upplýsingatækni í dag? Ég nota t.d. tæknina í námi. Ég hlusta á fyrirlestra bæði í Megindlegri aðferðafræði og í Ráðgjafarkenningum. Ég mæti reglulega í tíma en inn á moodle svæðinu get ég fundið alla þá tíma sem hafa verið. Þetta finnst mér alveg dásamlegt. Ekki bara það að ég búi hinu megin á landinu heldur t.d. bara ef nemendur eru veikir eða eitthvað kemur upp á. Mastersnám er val og við erum fullorðnir einstaklingar sem stjórnum okkur sjálf. Þetta finnst mér einnig mikilvægt baráttumál fyrir landsbyggðina. Það er alveg ömurlegt að Háskóli Íslands setja kröfur á hvar fólk býr. Þetta er H...

Vika 10

Vika 10 Vettvangsheimsókn Fórum í vettvangsheimsókn til Hildar Ýrar Gísladóttur í Verkmenntaskóla Austurlands. Fórum tvær saman í VA. Var mjög áhugavert og skemmtilegt. Fylgdumst með margskonar stuttum viðtölum sem náms-og starfsráðgjafinn tók. Hún var mjög flott í að leið nemendum á lausnarmiðun; Eigum við að hjálpast að við að finna lausn á þessu? Fengum að fylgjast með viðtali við unglinga sem t.d. voru með frestunaráráttu, hugbrigðaröskun, einelti, ásætti við kennara, skrá í og úr áföngum. Einnig aðstoðuðum við krakka á 1 ári í að velja fyrir næstu önn. Fylgdumst með þegar náms-og starfsráðgjafi lagði fyrir Brotthvarfskönnun og fórum á fyrirlestur; Að glíma við erfiða hegðun, algeng vandamál og ólíkar nálganir. Það var mjög gaman að geta tengt námið í Megindlegri aðferðafræði við Brotthvarfskönnunina. Stella Blöndal hefur sýnt okkur margt í þeirri könnun og var gaman að sjá hvernig sú könnun virkar í raun og veru.

Vika 9

Vika 9 Viðtalstækni, spurningar og þrepin 5 Virk hlustun: 5 megin tegundur tækni/færni 1.      Hvatning-ítrekun:nota til að hvetja ráðþega að halda áfram með frásögnina. Stutt orð notuð til að spyrja áfram. 2.      Endurorðun: felur í sér að endurorða aðalatriðin, nota orðanotkun ráðþegans. Endurorða með spurnartón. 3.      Samantekt. Ef ég skil þetta rétt þá....... 4.      Speglun tilfinninga 5.      Spurningar opnar og lokaðar. Opnar spurningar; yfirleitt ekki hægt að svara í örfáum orðum. Þær hjálpa oft ráðþega til að tala og þannig fær ráðgjafi meiri upplýsingar.  Lokaðar; oft já og nei svar. Geta gefið nákvæmar upplýsingar en ráðgjafi stjórnar viðtalinu ( Ivey og Ivey, 2014).

Vika 8

Vika 8 Ráðgjafarsamskipti - viðtalstækni grunnfærni Viðtalstækni og samband við ráþega Samband ráðþega og ráðgjafa er mjög mikilvægt. Ráðgjafarsambandið þarf að vera byggt upp á trúnaði og trausti. Við erum verkfærin, þurfum að skoða okkur sjálf vel, fara í sjálfsskoðun. Hver er ég og hvaða gildi skipta mig máli. Sjálfsþekking gerir okkur kleift að stýra sjálf hversu mikil áhrif persónueinkenni okkar hafa á ráðgjöfina. Setjum þarfir skjólstæðings í forgang, vörumst að uppfylla eigin þarfir. Í bókinni Becoming a Helper (Corey og Corey, 2007) er talað um að sum  gildi eða lífsýn geta haft áhrif á ráðgjöfina en önnur ekki. Fordómar og gildi? Lítið sem greinir á milli. Fordómar geta einnig valdið ráðgjafa erfiðleikum í ráðgjöf t.d. þú telur að fólk með tattú sé hættulegt. Að gera sér grein fyrir sínum eigin fordómum og vera tilbúin að fara inn í ráðgjöf með opnum hug getur verið lærdómsferli fyrir ráðgjafa. 

Vika 7

Vika 7 Ráðgjafarsamskipti - viðtalstækni og samband við ráðþega Viðtalstækni: Komum með okkur sjálf inn í ráðgjöfina. Verðum að taka þátt í ráðgjöfinni. Verðum að samsama okkur við ráðþegana. Sjálfþekking: Setjum þarfir skjólstæðingsins í forgang, vörumst að uppfylla eigin þarfir. Gildismat: Hvað skiptir okkur máli. Hvað einkennir góðan ráðgjafa: Þekking á eigin samskiptafærni. Vald-power: samband ráðþega og ráðgjafa. Má ekki vera yfirvald-sérstaklega erfitt í grunnskólum. Valdaójafnvægi. Ráðþegi upplifar sig sem minnimáttar. Kynjamunur getur valdið ójafnvægi. Góð vinátta- getur verið erfitt í ráðgjafahlutverkinu. Nánd-intimacy: Samhyggð-empathy. Líði vel þegar það kemur til mín, getur tjáð sig og vill koma aftur. Reynir á hæfni ráðgjafans.

Vika 6

Vika 6 Kynningar á vettvangsheimsóknum Margt sem var mjög spennandi. Góðar kynningar og fannst mér sérstaklega áhugavert hjá þeim sem fóru í heimsókn hjá Iðnskólanum.

Vika 5

Vika 5 Vettvangur Heimsókn til Austurbrúar. Hrönn Grímsdóttir er ný ráðin náms-og starfsráðgjafi hjá Austurbrú. Mjög áhugavert að kynnast því starfi sem fer fram á endurmenntunarstöð. Austurbrú vinnur að hagsmunamálum íbúa á Austurlandi og veitir samræmda og þverfaglega þjónustu tengda atvinnulífi, menntun og menningu. Stofnunin er í forsvari fyrir þróun: samfélags, atvinnulífs, háskólanáms, símenntunar, rannsókna og menningarstarfs á Austurlandi. Austurbrú er fyrsta stofnun sinnar tegundar á Íslandi. Markmiðið með henni er að einfalda stjórnsýslu, vera vettvangur fyrir samstarf og samþættingu og vinna metnaðarfullt starf, íbúum Austurlands til hagsbóta. Fylgdumst með viðtali vegna komandi færnimats. Útfylling á skimunarlistum. Námsferill. Fengum að fara yfir námsferil konu sem vildi fara aftur í nám eftir langt hlé. Skoðuðum Bendil og hvernig hann virkar. Viðtöl við starfsmenn á ólíkum vettvangi. Austurbrú er með fjölbreytt viðfangsefni og starfsfólkið kemur úr ólíkum...

Vika 4

Vika 4 Siðareglum Félags náms- og starfsráðgjafa er ætlað að efla fagvitund náms- og starfsráðgjafa og stuðla að fagmennsku í starfi með hagsmuni ráðþega í fyrirrúmi. Tilgangur þeirra er jafnframt að vera náms- og starfsráðgjöfum siðferðilegt leiðarljós í starfi, upplýsa almenning um hugsjónir og faglegar skyldur náms- og starfsráðgjafa, og vera mælikvarði á vönduð vinnubrögð innan fagstéttarinnar. Markmið náms- og starfsráðgjafar er að auðvelda einstaklingum að átta sig á eigin óskum og vilja og efla færni þeirra til að taka farsælar ákvarðanir um nám og starf. Inn á heimasíðu FNS; Félag náms-og starfsráðgjafa er hægt að finna siðareglur félagsins. Félag náms-og starfsráðgjafa

Vika 2

Vika 2 Fagleg ígrundun Hvernig verður maður fagmaður og hvernig viðheldur maður fagmennskunni? Jónína Kárdal fór yfir dagbókargerð, ferilmöppu og faglega ígrundun. Ætla að henda mér algjörlega í djúpulaugina og búa mér til vefsíðu þar sem ég mun setja inn svokallaða portfolio eða fagmöppu um vegferð mína í náms-og starfsráðgjafarnáminu. Verður spennandi að prófa þetta. Ætla að nota google svæðið og búa til google site síðu eða google blogg svæðið.

Vika 3

Vika 3 Samhengi ráðgjafar, lög og stefnur Hvað segja lögin um náms-og starfsráðgjöf í grunnskólum, framhaldsskólum, Háskólum, endurmenntun, vinnumarkaði, starfsendurhæfingu. Í grunnskólanum sem ég hef verið að vinna í undan farin ár er starfandi náms-og starfsráðgjafi.  Hún er ein af þeim sem fékk metið hin ýmsu námskeið og starfsreynslu og starfar því sem náms-og starfsráðgjafi. Ég hef margt út á hennar vinnu að setja sem á ekki heima hér en alla vega geri ég mér grein fyrir því að góðir náms-og starfsráðgjafar geta unnnið kraftaverk í grunnskólum. Það er ákveðið starfsöruggi að vita að þeir sem útskrifast sem náms-og starfsráðgjafar hafa rétt á að bera þennan titil. Auðvita var talað um þagnarskyldu. Þagnarskylda er eins og í grunnskólanum mjög mikilvæg. Ráðþegar verða að vita að þeir geti komið til ráðgjafa og treyst því að þeirra vandi eða hvað það er sem ráðgjöfin snýst um fari ekki út fyrir veggi herbergisins. Í ráðgjafarkenningum fórum við yfir lög og skildur náms...

Vika 1

Vika 1 Fagmennska Þekkja sín mörk sérþekkingar og hlutverks: Náms-og starfsráðgjafi er ekki sérfræðingur í geðlækningum eða neinu slíku. Að vita hvenær ráðþegi þarf að sérfræðiþekkingu er mikilvægt í starfinu. Ég hugsa að ráðþegar leiti oft til náms-og starfsráðgjafa til að fá ráðleggingar eða leiðbeiningar og því mjög mikilvægt að ráðgjafi greini vanda ráðþegans og leiðbeini honum til að fara til sérfræðinga ef hann telur þess þörf. Fyrstu þrír skóladagarnir: punktar sem við vorum beðin um að skrifa niður hjá okkur. Þetta skrifaði ég í dagbókina mín. ·        Spennandi næstu 2 árin ·        Tilhlökkun að læra eitthvað nýtt. ·        Vel tekið á móti nemendum ·        Svolítið yfirþyrmandi ·        Nýtt umhverfi ·        Skrítið að vera komin aftur í skóla

Ferilmappa

Ferilmappan mín Ferilmappan er samantekt á námsefni annarinnar í öllum þeim fögum sem ég hef verið í í vetur. Ferilmappan mín er í raun svona uppgjör á náminu í vetur. Námsefnið kemur mikið fyrir og hvernig sýn mín er á náms-og starfsráðgjöf sem verðandi starfsframa.

Upphaf annar

Dagbókin mín Ég ákvað í upphafi annar að skipta dagbókinni minni upp í vikur. Í lok hverrar viku settist ég niður og skrifað örlítið um hugrenningar mínar og námsefni vikunnar. Persónuleg leiðarlýsing og upplifun á náminu. Hugrenningar í upphafi náms: Ø   Hvernig ætli mér eigi eftir að ganga? Ø   Verð ég svona ein úr takti því ég mæti ekki í alla tíma? Ø   Kenningarnar. Margt að læra en mjög spennt fyrir nýrri þekkingu og nýrri reynslu.