Vika 10

Vika 10
Vettvangsheimsókn
Fórum í vettvangsheimsókn til Hildar Ýrar Gísladóttur í Verkmenntaskóla Austurlands.
Fórum tvær saman í VA. Var mjög áhugavert og skemmtilegt. Fylgdumst með margskonar stuttum viðtölum sem náms-og starfsráðgjafinn tók. Hún var mjög flott í að leið nemendum á lausnarmiðun; Eigum við að hjálpast að við að finna lausn á þessu? Fengum að fylgjast með viðtali við unglinga sem t.d. voru með frestunaráráttu, hugbrigðaröskun, einelti, ásætti við kennara, skrá í og úr áföngum. Einnig aðstoðuðum við krakka á 1 ári í að velja fyrir næstu önn. Fylgdumst með þegar náms-og starfsráðgjafi lagði fyrir Brotthvarfskönnun og fórum á fyrirlestur; Að glíma við erfiða hegðun, algeng vandamál og ólíkar nálganir.

Það var mjög gaman að geta tengt námið í Megindlegri aðferðafræði við Brotthvarfskönnunina. Stella Blöndal hefur sýnt okkur margt í þeirri könnun og var gaman að sjá hvernig sú könnun virkar í raun og veru.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Vika 2

Vika 8

Vika 6